African Brew
Þetta er eins konar milistig af kokkteil og sjeik...
4,5 cl Amarula Cream
1,2 dl klaki
1,2 dl súkkulaðiís
1 lítill banani
Blandið saman með töfrasprota eða varlega í matvinnsluvél. Hellið í stórt glas. Flott er að skreyta með bananabitum sem dýft hefur verið í bráðið súkkulaði.
