Brúni fíllinn
Þessi kokkteill kemur frá Suður-Afríku og er um margt ólíkur hinum hefðbundnu evrópsku og norður-amerísku kokkteilum. Með því að blanda saman rjómalíkjörnum, mjólk og kóladrykk næst hins vegar drykkur sem er þykkur og sætur en að sama skapi fremur ferskur og ekki of þungur.
4,5 cl Amarula Cream
10 cl mjólk
10 cl Coca Cola
Setjið Amarula og mjólk í kokkteilhristara ásamt klaka og hristið vel. Hellið í hátt kokkteilglas og hellið ísköldu kókinu út í. Hrærið varlega í drykknum.
