Deep Purple

Þessi er hrikalega flottur og litríkur en það er vanillu- og sítruslíkjörinn Parfait Amour sem stjórnar bæði lit og bragði. Drykkurinn kemur upprunalega frá barþjónum Grand Hotel í Stokkhólmi.

3 cl. Bols Parfait Amour

3 cl. Absolut Vodka

2 cl. nýkreystur lime-safi

Sprite eða 7up

Fyllið hátt og mjótt glas af klaka. Hellið síðan vökvanum í einum á fætur öðrum. Fyrst vodka, þá Parfait Amour, þá lime-safinn og fyllið loks upp í topp með gosinu.

Skreytið með dökkum vínberjum.

Senda á Facebook | Skoðanir (1)

Ummæli

13.10.2009 | 20:56 | Gerður Sigurðar bara flottur á eftir að smakka hann :=)






Senda skoðun
Hreinsa texta
Kokkteilar.is on Facebook