Rauðnefur

Það er kominn tími á jólakokkteilana og Magnús Örn á Domo setti saman þennan kokkteil sem hann kallar Rauðnef sérstaklega fyrir Vínotekið og kokkteilar.is.

3 cl. Stolichnaya Vodka

2 cl. Bols Strawberry

1 cl eplasafi

1/2 lime

4 jarðarber

8 myntulauf

2 cl kanilsíróp

Grenadine, dass til að styrkja litinn og gefa smá sætu

Kanilsíróp er gert með sama hætti og venjulegt sykursíróp fyrir kokkteila nema hvað að kanilstöng er soðin með vatninu og sykrinum.

Byrjið á því að merja saman lime, myntulauf, jarðarber og kanilsíróp í neðri hluta kokkteilhristara. Bætið Stoli vodka og Bols ásamt Grenadine saman við og hristið með klaka.

Fyllið Martiniglas af klakamulningi og hellið úr hristaranum í glasið. Það er flott að skreyta grasið með smá lime-crust áður.

Skreytið loks með kirsuberi og myntulaufi og jólakokkteillinn er kominn.

 

Senda á Facebook | Segðu þína skoðun

Ummæli







Senda skoðun
Hreinsa texta
Kokkteilar.is on Facebook