Pornstar Martini
Þessi flotti kokkteill með vafasama nafnið var upprunalega búinn til í Englandi en nýtur nú gífurlegra vinsælda á meginlandi Evrópu enda hörkugóður, þótt deila megi um nafnið. Hér í útgáfu Fleur hjá Che Group í Rotterdam. Ávöxtinn er best að mauka með töfrasprota.
5 cl af maukuðum ástaraldinsávexti (passion fruit)
3,5 cl Koskenkorva vodka
1,5 cl De Kuyper Passionfruit
2 cl vanillusíróp
(það er líka hægt að skipta út sírópinu ef þið eigið vanilluvodkva og nota þá 3 cl af því og 1,5 cl af venjulegu sykursírópi)
Setjið í hristara ásamt klaka. Hristið vel og hellið í Martini-glas. Skreytið með hálfum ástaraldins-ávexti sem er látinn fljóta ofan á.
Hefð er fyrir því að bjóða með skot af kampavíni eða Prosecco við hliðina á Pornstar Martini og dreypa svo á til skiptis.