101 Vanilla Espresso
Þessi kaffidrykkur er af kokkteilseðli 101 og höfundur drykkjarins Einar Valur Þorvarðarson.
1 espressobolli
2 cl Carolans rjómalíkjör
1 cl Kahlúa
1 cl Absolut Vanilla
dass af vanillusírópi (1 cl)
Setjið klaka í kokkteilhristara og byrjið á því að setja rjómalíkjörinn, Kahlúa og vodka í hristarann. Bætið við kaffibollanum og hristið vel. Passið ykkur á að hella kaffinu ekki fyrst í hristarann. Heitt kaffið bræðir klakana of hratt og drykkurinn verður því of vatnskenndur. Hellið í Martini glas. Skreytið með rjómatoppi og kaffibaunum.