Fylltir tómatar
Tómatar eru mikið notaðir í matargerð og hér göngum við alla leið og setjum þá í aðalhlutverk. Þetta er afskaplega einfaldur og fljótlegur réttur en engu að síður mjög góður.
Fyrir fjóra þarf eftirfarandi:
8 tómata, ekki of litla
600 g nautahakk
1 lauk, saxaðan
4 hvítlauksgeira, fínt saxaða
1 dl rauðvín ef þið eigið það til
1 lítil dós tómatakraftur
ferskar kryddjurtir, t.d. rósmarín, óregano og steinselju eða þurrkað rósmarín og óreganó og ferska steinselju
Salt og pipar
Skerið ofan af tómötunum og haldið "lokinu" til haga. Hreinsið innan úr tómatinum með skeið og saxið innvolsið.
Hitið olíu á pönnu og mýkið laukinn og hvítlaukinn. Bætið kjötinu út á og brúnið það í fimm mínútur eða svo. Saltið og piprið eftir smekk og bætið við kryddjurtunum. Setjið nú tómatakrafinn út á og hrærið saman við og svo saxaða tómatainnvolsið. Látið malla í nokkrar mínútur og hellið þá rauðvíninu út á. Sjóðið rauðvínið niður.
Setjið tómatana í ofnfast fat og fyllið þá með kjötinu. Setjið lokið ofan á. Ef eitthað kjöt er afgangs þá er gott að setja það í fatið með tómötunum.
Setjið inn í 200 gráða heitan ofn og eldið í 20-30 mínútur eða þar til tómatarnir eru orðnir alveg mjúkir og eldaðir í gegn.
Berið fram með fersku salati, hrísgrjónum eða pasta. Það er líka mjög gott að hafa smá nýrifinn parmesan til hliðar.
Einfalt en gott suður-ítalskt rauðvín með, t.d. A Mano eða Lamadoro.

