Vinotek mælir með
Það er ýmislegt sem rekur á fjörur Vínóteksins og hitt og þetta sem okkur langar stundum til að mæla með.
25. maí 2010 |
Ef velja á góða steik á grillið er T-Bone yfirleitt öruggt val. Ekki spillir fyrir að T-Bone steikurnar í íslenskum kjötborðum eru í raun ekki alvöru T-Bone heldur það sem í Bandaríkjunum er kallað Porterhouse þar sem við fáum sneið af bæði filé og lund, tveimur bestu vöðvum nautsins.
Lesa nánar
14. apríl 2010 |
Pizza er ekki sama og pizza. Bestar eru þær heimabakaðar og þá ræður maður líka nákvæmlega sjálfur hvað sett er ofan á og í hvaða hlutföllum.
Lesa nánar
14. febrúar 2010 |
Það eru líklega fáir Íslendingar sem ekki fá sér bollu á bolludeginum og flestir fleiri en eina en talið er að þessi siður hafi fest hér rætur á árum áður fyrir tilstilli danskra bakara. Menn hafa slegið á að borðaðar séu um milljón bollur í kringum þennan dag.
Lesa nánar
29. desember 2009 |
Það er mikið kjöt á kalkúnum og þrátt fyrir að allir taki hressilega til matar verður alltaf töluverður afgangur af fuglinum. Það er margt hægt að gera með þessa afganga og tilvalið að búa til góða ameríska samloku.
Lesa nánar
19. desember 2009 |
Íslenska hangikjötið er eiginlega okkar Parmaskinka. Auðvitað er það afskaplega misjafnt. Margt af því hangikjöti sem selt er í búðum er allt of salt og reykbragðið of yfirþyrmandi. En svo kemst maður stundum í alvöru hangikjöt, eins og það á að vera. Taðreykt af umhyggju með mildu og þægilegu reykbragði og saltið vart merkjanlegt. Þannig hangikjöt er algjört sælkerafæði og best að borða það hrátt, enda okkar hráskinka.
Lesa nánar
14. desember 2009 |
Þegar fer að líða að jólum bíða Danir spenntir eftir því að jólaákavítið frá Aalborg komi á markaðinn en þar í landi er rík hefð fyrir því að bera fram ískaldan snafs með julefrokost-borðinu. Danir drekka hvorki meira né minna en hálfa milljón lítra af snafsi í desember, það eru ansi mörg staup á hvern Dana.
Lesa nánar
07. október 2009 |
Það hefur enginn kokkteill notið þvílíkra vinsælda á Íslandi síðastliðin ár og Mojito. Raunar er hann einnig með vinsælustu drykkjum í heimi. Mojito er kúbanskur að uppruna og hafa menn reynt að rekja sögu hans margar aldir aftur í tímann.
Lesa nánar
07. október 2009 |
Quickes er gamalgróin ostagerð í Devon í Bretlandi. Quicke-fjölskyldan hefur búið í héraðinu frá árinu 153 og fékk á sínum tíma gjöfular lendur frá Hinrik áttunda Englandskonungi. Nú er það Mary Quicke sem heldur utan um búið. Þekktasta afurð hennar er Cheddar-osturinn sem á dögunum var valinn besti Cheddar-ostur Bretlands þegar the British Cheese Awards voru veitt
Lesa nánar
25. september 2009 |
Sú var tíðin að vínin frá Beaujolais voru með þeim vinsælustu á Íslandi. Síðustu árin hafa þau hins vegar varla sést í vínbúðunum og raunar átt verulega undir högg að sækja víðar en hér. Að miklu leyti er það vínbændum í Beaujolais að kenna.
Lesa nánar
04. september 2009 |
Margir af þekktustu ostum heims eru framleiddir úr geitamjólk eða sauðamjólk og má nefna Roquefort, Ricotta, Pecorino, Feta og Manchego sem dæmi um nokkra sauðaosta. Það er því fagnaðarefni að fyrir nokkru hófst framleiðsla á ostum úr sauðamjólk og geitamjólk hér á landi.
Lesa nánar
23. júlí 2009 |
Við eigum kannski ekki styrjur í íslenskum vötnum og ám en við eigum lax og bleikju. Það vill oft gleymast að hrogn laxa og bleikju eru með því ljúffengasta sem hægt er að fá. Bleikjuhrogn eru í sérlegu uppáhaldi og best er að borða þau með sama hætti og rússneskan styrjukavíar: Á litlum blinispönnukökum með sýrðum rjóma og rauðlauk.
Lesa nánar
03. júní 2009 |
Sumarið er tími rósavínanna. Það á fátt betur við á fallegum sumardegi en glas af köldu og ávaxtamiklu rósavíni með léttum hádegisverði. Munið bara að velja þurrt og vandað rósavín. Það eru nokkur mjög frambærileg og góð fánleg í vínbúðunum t.d. frá Carmen í Chile og Antinori á Ítalíu.
Lesa nánar
03. júní 2009 |
Nú fer hver að verða síðastur að setja niður í matjurtagarðinn ef menn ætla að ná góðri uppskeru í haust. Það er fátt eins gott og heimaræktað salat og kryddjurtir og það er hægt að rækta ótrúlegustu hluti í íslenskum görðum. Miðað við kílóið á klettasalatið og steinselju út úr búð getur það líka verið ansi skynsamleg fjárfesting og mikil búhyggindi að stinga niður nokkrum fræjum og njóta svo fram á haust. Þeir óþolinmóðu geta skellt sér í næstu gróðrastöð og keypt tilbúnar plöntur í gróðrastöðvunum.
Lesa nánar