Laurent Miquel l’Artisan Chardonnay

Laurent Miquel er fjölskyldurekið vínhús í Languedoc í Suður-Frakklandi sem hefur verið að gera ansi góða hluti. Við fjölluðum nýlega um eitthvert fyrsta franska Albarino-vínið frá Miquel en hérna erum við að smakka Chardonnay-vínið úr l’Artisan-línunni.

Gult á lit, mild eik í nefinu, þurr sítrus, greipbörkur melóna,, hnetur, möndlur. Þurrt, hneturnar halda áfram í munni, þurr vanilla.

2.299 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.