Rioja Bordon Reserva 2011

Bodegas Franco-Espanolas mætti þýða sem frans-spænska vínhúsið og nafnið á sér sögulegar skýringar. Þegar að rótarlús lagði víngerð í Frakklandi í rúst á síðari hluta nítjándu aldar færðu margir eigendur vínhúsa í Bordeaux sig yfir til Rioja á Spáni á meðan að plágan gekk yfir. Þetta hafði mikil og mótandi áhrif á stíl vínanna á svæðinu og jafnvel urðu til ný vínhús, eins og Franco-Espanolas sem var stofnað af fjölskyldum frá Bordeaux og Rioja. Það er í dag með stærri og virtari vínhúsum svæðisins, vínin yfirleitt klassískt og tignarleg og njóta mikilla vinsælda á Spáni.

Þessi Reserva er virkilega klassísk, örlítill byrjandi þroski í litnum sem er þó enn fallega rauður, í nefinu áberandi tóbakslauf, míneralískt, þéttur og flottur dökkrauður ávöxtur, örlítið sviðinn eik, afskaplega elegant og flott Rioja.

90%

2.690 krónur. Frábær kaup. Klassískt Rioja fyrir rauðar nautasteikur og lamb.

  • 9
Deila.