
Telmo Rodriguez er einn þekktasti víngerðarmaður Spánar og er oft nefndur í sömu andrá og snillingurinn Alvaro Palacios í Priorat. Rodriguez gerir vín víða um Spán (all nokkur þeirra hafa stundum verið fáanleg hér á landi) og hefur hann leitast við að draga fram sérkenni og styrk hvers svæðis fyrir sig og þeirra vínþrúgna sem þar eru ræktaðar. Upprunasaga hans hefst hins vegar í Rioja, nánar tiltekið í Rioja Alavesa þar sem fjölskyldan á vínhúsið Remelluri sem faðir hans keypti árið 1967. Vínekrur Remelluri skiptast í um 80 bletti sem eru hátt yfir sjávarmáli, þeir hæstu í um 950 metra hæð sem er með því hæsta sem gerist í Rioja.
Reserva-vínið er helsta táknmynd Remelluri, þrúgurnar eru lífrænt ræktaðar og af bestu blettum hússins. Dimmrautt með þroskuðum, heitum kirsuberjaávexti og plómum í nefi, kryddað, tóbakslauf, vottur af leðri. Ávöxturinn er ferskur, tær, í munni sýrumikið, þétt tannín og mikil lengd. Virkilega fágað og flott Rioja.
7.999 krónur. Frábær kaup. Fágað og tignarlegt Rioja-vín.