
Agassac hefur árum saman verið með bestu kaupunum í Bordeaux sem hér eru í boði. Þetta fallega vínhús liggur rétt utan við þorpin á Médoc-skaganum sem státa af Grand Cru Classé -húsunum og verðið er því töluvert lægra, gæðin hins vegar alveg á pari við mörg Grand Cru-húsanna. 2019 er klassískur Claret, dökkur sólberjasafi og rifs, vottur af tóbakslaufum, blýantsyddi, kröftug tannín, þurrt og míneralískt, springur út með mat.
90%
4.799 krónur. Frábær kaup í þessu klassíska Bordeaux. Með öndinni, hreindýrinu eða nautinu.
-
9