Vínin sem fengu Gyllta glasið

Nú er nýlokið keppninni um Gyllta Glasið 2026 sem er undir stjórn Vínþjónasamtaka Íslands. Verðflokkur vína í keppni í ár var frá 2.490 kr til 5.000 kr og völdu vínbirgjar vín sem tóku þátt í keppninni. Smökkunin í tengslum við Gyllta glasið fer fram í tveimur áföngum og í þessum fyrri áfanga voru tekin fyrir vín sem framleidd eru sunnan miðbaugs ásamt vínum frá Norður-Ameríku. Þá var nú jafnframt sérstök smökkun í flokki rósavína en þar var ekkert verðþak né heldur kvöð um landfræðilegan uppruna. Einungis var gerð krafa um að vínið væri árgangsmerkt..

Vínin voru smökkuð blint af sérstakri dómnefnd sem Vínþjónasamtökin boðuðu til smökkunra á Natura 3.maí sl. en yfirdómari var eins og fyrri ár Alba E H Hough margfaldur Íslandsmeistari vínþjóna ásamt sérstakri aðstoð frá fagfólki.

5 hvítvín, 10 rauðvín og 4 rósavín hlutu Gyllta glasið 2026 í þessum fyrri áfanga smökkunarinnar. Vínin verða sérmerkt í Vínbúðum með merki Gyllta Glassins og gildir það fyrir árganginn sem fékk verðlaunin.

Hvítvín:

Invivo X, SJP Sauvignon Blanc 2024, 3.399 kr

Villa Maria Private Bin Sauvignon Blanc 2024, 3.199 kr

Matua Sauvignon Blanc 2023, 2.899 kr

Penfolds Koonunga Hill 2024, 2.999 kr

Escudo Rojo Gran Reserva Chardonnay 2022, 3þ299 kr

Rósavín:

La Vielle Ferme Rosé 2025, 2.690 kr

Invivo X SJP Rose, 2025, 2.999 kr

This Life Rosé 2024, 2.999 kr

Tormaresca Néprica Rosé 2025, 2.899 kr

Rauðvín:

MacMurray Russian River Valley Pinot Noir 2021, 4.998 kr

Nederburg The Winemaster Cabernet Sauvignon 2022, 2.699 kr

Peter Lehmann Portrait Cabernet Sauvignon 2022, 3.498 kr

Santa Rita 120 Cabernet Sauvignon Reserva Especial 2024, 2.699 kr

Nederburg The Winemaster Cabernet Sauvignon 2024, 2.699 kr

Trivento Cabernet Sauvignon Reserve 2024, 2.699 kr

Fairview Back’s Blend Red 2024, 3.090 kr

Trapiche Gran Medalla Malbec 2023, 4.299 kr

Trapiche Oak Cask Malbec 2024, 2.499 kr

Catena Malbec 2024, 3.189 kr     

Deila.