Belgíski bjórinn

Flest ríki hafa sérstöđu á einhverju sviđi matarmenningar. Merkasta framlag Belga á ţessu sviđi er vafalítiđ bjórinn. Hvergi í veröldinni er lagđur jafnmikill metnađur í framleiđslu bjórs og ekkert ríki býđur upp á jafnbreiđa og fjölbreytta flóru af ţessum útbreidda miđi.
Belgar taka bjórinn sinn jafnhátíđlega og Frakkar víniđ sitt og Ţjóđverjar bílana sína. Gestir á kaffihúsum og krám gera til dćmis ófrávíkjanlega kröfu til ţess ađ hver bjór sé borinn fram í sínu tiltekna glasi. Ólíkt öđrum ríkjum eru Belgar heldur ekki ađ binda sig viđ eina eđa tvćr bjórtegundir. Langflestir ţýskir bjórar eru af pilsner-gerđ, Írar drekka sk. "stout" og hefđbundinn breskur bjór er af "ale"-gerđ. Í Belgíu er hins vegar hćgt ađ finna bjór fyrir hvert tćkifćri. Neyslutölur sýna ađ Íslendingar eru mikiđ fyrir bjór en neysla okkar er fremur einhćf og byggist nćr eingöngu á pilsner-bjórum.

Stór hluti neyslunnar í Belgíu er ljós bjór bruggađur úr hveiti og byggi. Í ţeim flokki má annars vegar finna bjóra í pilsner-stílnum og hins vegar hvítan bjór sem á flćmsku er kallađur Vitbier en á ţýsku Weissbier.

Pilsnerinn sem hér hefur veriđ fáanlegur heitir Stella Artois og er líklega almennt ţekktasti bjór Belgíu og jafnframt sá er Belgar sjálfir drekka hvađ mest af ásamt bjórnum Jupiler. Saga Stellu nćr allt aftur til ársins 1366 er lítiđ brugghús, Der Horen (eđa Horniđ) var stofnađ. Nafniđ Artois var tekiđ upp áriđ 1717 er mađur ađ nafni Sebastian Artois festi kaup á ţví. Ţetta er sígildur lagerbjór, beiskur og laus viđ sćtu.

Í allt öđrum stíl er hvítbjórinn Hooegarden. Hann hefur mjög sérstakt bragđ enda er bćtt út í hann appelsínuberki og kóríander. Hooegarden var upphaflega bruggađur af munkum í samnefndum bć og hafa vinsćldir hans stöđugt fariđ vaxandi í Evrópu á síđastliđnum áratugum. Hann hefur mikinn karakter, er léttur og ferskur og ţykir henta vel í hitum.

Ţađ eru ekki síst munkar er sett hafa mark sitt á belgísku bjórframleiđsluna. Í Frakklandi, Ítalíu og Spáni hafa munkar öldum saman rćktađ vín en í Belgíu hefur loftslag sett munkunum ákveđin takmörk. Ţeir fóru ţví ađ brugga bjór í stađ ţess ađ rćkta vín og eru margir af ţekktustu bjórum landsins kenndir viđ ákveđinn klaustur. Mörg klaustur tilheyra hinni svokölluđu Trappister-reglu og fimm ţeirra brugga enn sinn eigin bjór, sk. trappista-bjóra. Eru ţeir Chimay, Orval, Westvleteren, Westmalle og Rochefort. Önnur klaustur hafa hins vegar selt réttinn til bjórframleiđslunnar og eru slíkir bjórar gjarnan nefndir klaustur-bjórar. Ţekktastur ţeirra er Leffe, sem nú er í reynslusölu hérlendis. Leffe Blonde er ţćgilegur bjór í ale-stíl, ekki áberandi sćtur og međ ţćgilegum maltkeim.

Loks mćtti nefna sk. lambic-bjóra er kenndir eru viđ bćinn Lambeek. Ţađ eru hveitibjórar er byggjast á sjálfbćrri gerjun. Engu geri er bćtt viđ hveitiđ, heldur gluggar opnađir og náttúruleg ger látin streyma inn yfir nóttina.

Ţetta eru ţyngstu og flóknustu bjórar Belga og gjarnan látnir ţroskast á tunnum í nokkra mánuđi eđa jafnvel ár.