Einstök er svolítið sérstakt nafn á bjór að minnsta kosti fyrir íslensk eyru. Enda er bjórinn fyrst og fremst hugsaður fyrir útflutningsmarkað og nafnið væntanlega valið með það í huga að það hljómi svona hæfilega norrænt og exótískt. Það eru þrír Bandaríkjamenn sem standa að baki Einstök en bjórinn er hins vegar bruggaður af Vífilfelli á Akureyri.
Einstök Pale Ale er einn fyrsti bjórinn sem kemur frá „brugghúsinu“ Einstök. Ferskur, humlaður og með þægilegri beiskju.