William Févre Chablis 2012

Það er óvenjulegt að sjá vín eins og þessi í þriggja lítra boxi eða belju eins og sumir kallar þær. Chablis frá einu virtasta vínhúsi svæðisins, WIlliam Févre. Vissulega er þetta frábrugðið Chablis-víninu frá Févre sem selt er á flöskum, þetta er vín úr aðkeyptum þrúgum en ekki frá ekrum Févre. En…engu að síður, þetta Chablis vín í boxi, sem var ekki síst gert með Norðurlandamarkaðinn í huga, er besta hvítvínið sem ég hef smakkað hér á landi sem selt er í umbúðum af þessu tagi.

Þetta er alvöru Chablis, græn epli, gul epli, nokkuð þroskuð, smá sítrus og töluvert míneralískt, kalk. Ágætlega þykkt í munni, þétt með þægilegri sýru. Það má kannski ekki geyma kassann mjög lengi eftir opnun og það er ekki alveg hægt að bera hann saman við flest Chablis-vínin sem seld eru á flösku, en engu að síður. Það er mikill metnaður í þessu víni og fyrir þá sem vilja boxin er þetta mjög góður kostur. Þetta er fyrsta kassavínið sem að fær fjórar stjörnur hjá okkur.

9.999 krónur eða sem samsvarar rétt um 2.500 krónur per 75 cl. Mjög góð kaup.

Deila.