J. Lohr Riverstone Chardonnay 2011

Vínin frá J. Lohr í Kaliforníu voru fáanleg hér á landi fyrir nokkrum árum og ánægjulegt að sjá vín frá þessu ágæta vínhúsi komin á markað á ný. að er alltof lítið til af góðum bandarískum vínum á Íslandi miðað við hversu framalega Bandaríkin standa í vínheiminum.

Þetta vín kemur frá Monterey, nánar tiltekið nokkuð svölu svæði nærri Kyrrahafinu sem heitir Arroyo Seco. Nokkuð gullið, töluvert míneralísk angan, brennisteinn, kandís, vanilla, sítrusbörkur. Þurrt, fín fylling, heldur lengd vel. Brenndur sykur í lokin.

3.258 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.