St. Joseph er víngerðarsvæði í norðurhluta Rhone suður af Lyon. Þetta er svæðið þar sem að Syrah-þrúgan ræður ríkjum og svona til að setja hlutina í smá samhengi þá er St. Joseph rétt fyrir norðan svæðin Hermitage og Crozez-Hermitage.
Vidal-Fleury er flottur framleiðandi og það sama lýsingarorð má nota um þetta vín. Dökkt á lit, svartur berjaávöxtur í nefi, sólber, verulega kryddað, þarna er lakkrís, það er töluvert piprað, áberandi reykur, eik. Kröftugt, staðföst en ekki hörð tannín. Hörkuvín, t.d. með villibráð á borð við gæs.
3.899 krónur. Mjög góð kaup – sérpöntun.