Pic St. Loup er víngerðarsvæði í héraðinu Languedoc-Rousillon í Suður-Frakklandi og George Bertrand, maðurinn á bak við eþtta vín, er einn þeirra sem að hefur gert hvað mest til að koma bæði Pic og Languedoc á kortið alþjóðlega.
Enn mjög ungt, en farið að ná mýkt í ávextinum. Míneralískt í nefi, skógarber, plómur, fíkjur, rabarbarasulta. Þétt og öflugt, flottur mjúkur tannískur strúktúr, lakkrís/anís í munni. Með íslenskri villibráð á borð við lambakjöti og hreindýri.
2.799 krónur. Frábær kaup.