Maríukaka – súkkulaðikaka með karamellu og pecanhnetum

Þessi súkkulaðikaka með pecanhnetum og karamellu er gjarnan nefnd Maríukaka og er ljúffengur eftirréttur.

Botninn

  • 3 egg
  • 3 dl sykur
  • 4 msk. smjör
  • 100 gr. dökkt súkkulaði
  • 1 tsk. salt
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 1 ½ dl. hveiti

Þeytið egg og sykur vel saman. Bræðið súkkulaði og smjör saman og bætið við þeyttu eggin. Blandið hveiti, vanilludropum og salti varlega saman við

Setjið í form og bakið við 180°c í 17-20 mínútur.

Karamella

  • 4 msk. smjör
  • 1 dl. púðursykur
  • 3 msk. rjómi

Setjið í pott og bræðið á vægum hita í þunna karamellu  á meðan kakan bakast

  • 1 ½ pakki pecanhnetur, brytjaðar

Kakan er tekin út og pecanhnetunum stráð yfir, og þunnri karamellunni hellt þar yfir. Setjið aftur inn í ofn og bakið í um 17 mínútur til viðbótar við 180°c

Loks er 1 plata af dökku súkkulaði brytjuð og stráð yfir kökuna um leið og hún kemur úr ofninum. Loks er gott að setja fersk ber, t.d. jarðarber, yfir kökuna áður en hún er borin fram.

Hægt er að frysta kökuna.

Fleiri ljúffengar kökur og eftirrétti má sjá með því að smella hér.

Deila.