Það vex mörgum í augum að elda heila kalkún. Oft er nóg að nota bara eina bringu fyrir venjulega fjölskyldu. Hér er einföld og góð uppskrift að kalkúnabringu með kryddjurtum.
- 1 kalkúnabringa
- safi úr hálfri sítrónu
- 2 msk sojasósa
- 2 vorlaukar, saxaðir smátt
- 3 msk fínsöxuð fersk salvía eða 1 msk þurrkuð
- 1 msk ferskt eða 1 tsk þurrkað marjoram
- 1 msk ferkt eða 1 tsk þurrkað timjan
- 75 g smjör
- salt og pipar
Bræðið smjörið í potti. Blandið sítrónusafa, sojasósu, vorlauk og kryddjurtum saman við.
Setjið kalkúnabringuna í eldfast mót. Saltið og piprið. Hellið smjörblöndunni yfir.
Eldið í 180 gráðu heitum ofni í um 45 mínútur eða þar til bringan er fullelduð. Snúið bringunni við og veltið upp úr vökvanum þegar 20 mínútur eru liðnar.
Berið fram með kartöflumús og fersku salati