Vínhúsið Canepa var stofnað af ítölskum innflytjanda frá Genóa á fyrri hluta síðustu aldar og hefur á síðustu árum vaxið og dafnað og hefur frá árinu 2007 verið í nánu samstarfi við vínrisann Concha y Toro, líkt og mörg önnur vínhús á þessum slóðum.
Þetta er ungur og fínn chilenskur Cabernet. Ferskur sólberja- og rifsberjasafi, mynta og vottur af vanillu. Ávöxtur heldur áfram í munni, ágætlega þykkur og þroskaður mjúkt, míneralískt.
1.999 krónur. Mjög góð kaup á því verði.