Banfi Rivo al Poggio 2012

Rivo al Poggio er eitt af mörgum vínum sem að Banfi framleiðir á Ítalíu. Það er gert úr þrúgum frá Toskana en er samt ekki þetta dæmigerða þurra og stífa hvíta Toskana-vín. Hér eru enda á ferðinni „utanaðakomandi“ þrúgur, Chardonnay og Pinot Grigio og skilgreiningin því IGT.

Nefið er opið, bjart, með sætum og aðlaðandi ávexti, ferskjum, melónum og þroskuðum perum. Ágætlega þurrt í munni, ávöxtur heldur sér vel og vínið hefur þægilegan ferskleika og sjarma. Tilvalið sem fordrykkur eða með léttum réttum.

1.899 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.