Þrúgurnar sem rækta má í Rioja-héraðinu á Spáni eru sjö talsins: Tempranillo, Graciano, Garnacha, Mazuelo, Viura, Malvasia og Garnacha Blanca. Þrjár fjórar fyrstu eru rauðar, hinar þrjár hvítar. Það er ekki oft – eiginlega nánast aldrei – sem að maður fær þær allar í einu og sama víninu. Það er hins vegar gömul hefð fyrir því í Evrópu að blanda saman hvítum og rauðum vínum, þekktustu dæmin eru líklega hin mögnuðu Cote Rotie í Frakklandi og Chianti vínin í Toskana á Ítalíu. Í víninu Siete Vinas sækir vínhúsið Baron de Ley innblástur í þessa gömlu hefð og útkoman er alveg hreint mögnuð. Mikið rauðvín þar sem hvítu þrúgurnar eru notaðar sem eins konar krydd.
Amerísk eik tekur á móti manni, krydduð, mikil og þykk, dökkur ávöxturinn undir, þroskaður, sýrumikill og tannískur. Berjaávöxtur, kirsuber, trönuber, blómaangan, fjólur. Massívt í munni, djúpt, kryddað, kröftug og mikil en mjúk tannín.
Má hæglega geyma í áratug.
4.899 krónur. Mjög góð kaup.