Coste Carezzi Parziale Appassimento BiB

Coste Carezzi er ítalskt „kassavín“ frá Veneto, blanda úr þrúgunum Merlot og Cabernet Sauvignon. Það er að hluta gert með Appassimento-aðferðinni, sem hefur notið svo mikilla vinsælda síðustu árin, en þá eru þrúgurnar vindþurrkaðar fyrir pressun líkt og við víngerð Amarone-vína og safinn sem kemur úr þeim þykkri og sætari.

Vínið er dökkt, hefur nokkuð sæta angan af dökku berjakompott, létt kryddangan, örlítið súkklaði, í munni nokkuð sætur ávöxtur, bjartur, mjúkt með merkjanlegum tannínum í lokin. Hið ágætasta kassavín.

6.399 krónur fyrir þriggja lítra kassa eða sem samsvarar rétt um 1.600 krónum miðað við 75 cl flösku.

Deila.