Vino de Pago er tiltölulega ný skilgreining innan spænska flokkunarkerfisins sem nær til einstakra vínhúsa en ekki heilla vínsvæða. Pago de Cirsus er vínhús í Navarra sem að fellur undir þennan flokk og fyrstu vínin frá því komu nýlega í búðirnar, þar á meðal þetta hvíta Chardonnay-vín
Skart, afskaplega fókuserað í nefi, græn epli, perubrjóstsykur, sæt kantalópumelóna, ferskjur. þykkt og feitt,, ferskt. Svakalega vel gert vín.
2.249 krónur. Frábær kaup.