Þetta Chardonnay-vín frá Vina Maipo í Chile er vissulega einfalt og afskaplega ódýrt. En það er líka afskaplega heillandi og vel gert, ferskur sítrus í nefi, límónur, ferskjur. Í munni þurrt og ferskt, með hreinum og tærum ávexti. Fínt sem fordrykkur, veisluvín eða t.d. með grilluðum sjávarréttum.
1.579 krónur. Mjög góð kaup.