Pascal Jolivet Sancerre 2014

pascal jolivetÞótt margir tengi kannski Sauvignon Blanc við Nýja heiminn, Chile og Sauvignon Blanc, þá er þetta hennar eina sanna konungsdæmi, þorpin Sancerre og Pouilly-Fumé austast í Loire-dalnum í Frakklandi. Pascal Jolivet er einn af allra fremstu framleiðendum svæðisins, vínin hans eru alla jafna unaðsleg, fersk, lifandi og endurspegla þessa stórkostlegu þrúgu fullkomlega.

Þetta var topp ár í Sancerre. Tær, grænn ávöxtur, grösugt, kívi, lychée, nýslegið gras, grænn aspas, sýrumikið og ferskt með hreinum og skörpum ávexti.

90%

3.699 krónur. Frábært vín með öllu fersku sjávarfangi.

  • 9
Deila.