Peter Lehmann Mentor Cabernet Sauvignon 2011

mentorMunið þið þegar að Ástralía réði ríkjum í hillum vínbúðanna og flest af mest spennandi vínunum sem hægt var að nálgast komu þaðan. Vá, hvað að er langt síðan og hvað mikið hefur gerst síðan. Hlutur Ástralíu í úrvalinu í dag er ekki nema svipur hjá sjón. Argentína, Chile, Bandaríkin,  Nýja-Sjáland og Suður-Afríka eru búin að skjóta Áströlunum ref fyrir rass í keppninni um hylli neytenda. Hvað gerðist?

Ástæðurnar eru margar. Ástralir þurftu að horfast í augu við að þeir búa í þurrustu heimsálfunni og það var ekki hægt að þenja vínræktina út endalaust. Þeir hækkuðu verðin of mikið, þeir þynntu mörg af þekktustu vörumerkjunum út of mikið og svo fóru þeir að horfa til Asíu frekar en Evrópu. Margir samverkandi þættir sem sagt.

En svo rekur svona vín á fjörurnar sem minnir mann á hvers vegna við elskuðum áströlsku vinin og hvers vegna það er ástæða til að hafa þau enn á radarnum.

Mentorinn frá Lehmann er auðvitað klassík. Eitt af toppvínum Barossa-dalsins rétt eins og Shiraz-vínið Stonewell.

Dökkt með þungum og miklum sólberjaávexti, þarna er  mynta, sedrus, kaffi, djúpt, mjúkt og myrkt með ágengum krafti og unaðslega vel uppbyggt.

100%

5.399 krónur. Frábært vín, þarf kraftmikinn mat, bragðmikið naut, hreindýr og aðra villibráð.

  • 10
Deila.