Norðurlandakeppni matreiðslumanna og þjóna verður haldin þriðjudaginn 8. mars í Herning í Danmörku. Þar verða samankomnir allir helstu matreiðslumenn og þjónar Norðurlandanna sem munu keppa sín á milli. Þrír keppendur taka þátt fyrir Íslands hönd en keppt er í jafnmörgum flokkum. Kokkur Ársins, Denis Grbic matreiðslumaður á Grillinu á Hótel Sögu keppir í ,, Nordic Chef”, Iðunn Sigurðardóttir matreiðslumaður á Matarkjallaranum keppir í ,,Nordic Chef Junior” og Thelma Björk Hlynsdóttir þjónn á veitingastaðnum Olo í Finnlandi keppir í ,,Nordic Waiter”. Keppendur eru 5 í öllum flokkunum en auk fulltrúa Íslands eru keppendur frá
Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi og Noregi.
Viktor Örn Andrésson sem vann keppnina ,,Nordic Chef“ árið 2014 situr í dómnefnd fyrir matreiðsluhluta keppninnar. Natacha Elisabeth Fischer dæmir fyrir Íslands hönd í þjónustu.
Fyrirkomulag keppninnar er með þeim hætti að kokkarnir fá að vita degi fyrir keppni hvaða hráefni þeir eiga að nota og þurfa að setja saman þriggja rétta matseðil og skila honum skriflega til dómnefndar samdægurs. Á keppnisdegi elda þeir svo réttina í opnu eldhúsi fyrir 8 manna dómnefnd sem dæmir réttina út frá fagmennsku í eldhúsi, bragði, útliti og nýtingu hráefnis.


