Laurent Michel Albarino 2014

IMG_2002Albarino-þrúgan er upprunnin frá vesturströnd Íberíuskagans, þetta er þrúgan sem notuð er í vínin frá Rias Baixas í Galisíu á Spáni og í norðurhluta Portúgal. Yndisleg hvítvínsþrúga sem farin er að teygja anga sína víðar. Þetta vín kemur frá Languedoc í suðurhluta Frakklands, eitt af vínunum frá vínhúsi Laurent Miquel.

Fallegur ljósgulur litur, angan er fersk, sítrusmikil, sítrónur og sítrónubörkur, nokkuð míneralískt, töluvert annar karakter en í spænsku vínunum, þarna er góð og fersk sýra, þéttur og fínn ávöxtur, þurrt. Matarvín.

70%

2.799 krónur. Mjög góð kaup. Vín fyrir sushi, skelfisk og grillaðan eða steiktan fisk með sítrónu.

  • 7
Deila.