Föstudaginn 3. júní munu veitingastaðirnir Sæmundur í sparifötunum á KEX, Hverfisgata 12 og DILL Restaurant slá saman í eitt heljarinnar GRILL SAMSÆTI í Vitagarði, bakgarði KEX Hostel. Með veitingarstöðunum þrem í liði verður enginn annar en Mads Batterfeld sem er góðvinur DILL, gangandi viskubrunnur um eldun á eldi og ríkjandi Danmerkurmeistari í svínakjötseldun. Mads starfar sem sous chef á fyrrum vinnustað Ragnars Eiríkssonar yfirmatreiðslumeistara á DILL, Henne Kirkeby Kro. Yfirkokkur á Henne Kirkeby Kro er stjörnukokkurinn Paul Cunningham og hlaut staðurinn á dögunum eina verðskuldaða Michelin-stjörnu.
Eldamennskan mun fara fram að fornum (heiðnum) sið, þ.e. yfir opnum eldi. Kokkarnir frá veitingastöðunum fjórum munu elda lamb, grís, naut, skötusel og lúðu í heilu lagi. Fá sæti eru í boði og verður fyrirkomulagið „All You Can Eat“.
Á boðstólum verða einnig lífræn og náttúruleg vín og handverksbjór í topp klassa.