Roda 1 2008

img_2664Vínhúsið Roda er ekki bara eitt besta vínhús Rioja heldur hefur það jafnframt sterka Íslandstengingu í gegnum eigandann Mario Rotlant, sem hefur lengi verið með helstu saltfisksinnflytjendum Spánar og haslaði sér jafnframt fyrir ekki svo löngu völl í íslensku viðskiptalífi með kaupum á Vífilfelli.

Roda er ekki gamalt vínhús. Það var sett á laggirnar árið 1987 og var markmiðið frá upphafi að búa til Rioja-vín í nýjum stíl í hæsta gæðaflokki. Það hefur svo sannarlega tekist. Toppvínið Cirsion er með dýrustu og bestu vínum Rioja og Roda 1 og Roda 2 eru sömuleiðis í toppbaráttunni. Roda er vissulega í öðrum verðflokki en við eigum að venjast þegar Rioja-vin eru annars vegar. Það er hins vegar ekki dýrt miðað við önnur vín, t.d. frá Bordeaux, í sama gæðaflokki.

2008 var mjög góður árgangur í Rioja og þetta er afbragðs Roda. Vínið er fyrst og fremst Tempranillo (90%) með smá Graciano og Garnacha. Það er farið að sýna örlítinn byrjandi þroska í lit og nefi, enda farið að nálgast áratuginn í aldri. Allt yfirbragð þó mjög ungt miðað við það. Svartur, heitur, dökkur ávöxtur, töluvert kryddaður, ristað, mokkatónar, leður, töluverð vanilla, mikið, mikið um sig en mjúkt og pólerað en tannínin eru þarna og gefa því boddí og kraft. Hrikalega flott vín.

100%

7.998 krónur. Frábær kaup í þeim verðflokki.

  • 10
Deila.