La Braccesca 2013

img_2762Göfugu vínin frá Montepulciano eða Vino Nobile di Montepulciano eru vín frá Toskana sem við eigum til að gleyma stundum þótt þau séu oft með þeim betri frá þessu magnaða héraði. La Braccesca er búgarður í eigu Antinori-fjölskyldunnar sem á ekrur á meginsvæðinu í kringum þorpið Montepulciano. Vínið er blanda úr Prugnolo Gentile eins og Sangiovese-þrúgan er kölluð þarna og Merlot (10%).

Dökkt, fjölublátt á lit, ungt yfirbragð. Í nefi fjólur, þroskaður plómuávöxtur, heitur, krækiberjasafi, míneralískt með kalktónum, þykkt með þægilega mjúkum tannínum (ef þið gefið víninu 1-2 klst til að opna sig).

90%

2.999 krónur. Frábær kaup, frábært matarvín.

  • 9
Deila.