Vínin frá Ribera del Duero á Spáni eru orðin mun algengari hér á landi en var – sem er fagnaðarefni því þetta er eitt allra besta vínhérað Spánar. Þrúgan sú sama og í Rioja en þó örlítið annað afbrigði. Vínin yfirleitt kröftugri og massaðri en Rioja-vínin, sem einkennast meira af fínleikanum.
Emilio Moro er einn af helstu framleiðendum svæðisins og nú er 2014 vínið komið í búðirnar. Það er enn mjög, mjög ungt og því mæli ég eindregið með því að gefa því smá tíma – ef ekki í geymslu þá að minnsta kosti að leyfa því að standa smá eftir að flaskan er opnuð og helst umhella. Það margborgar sig.
Vínið er dökkrautt út í fjólublátt á lit, megn berjaangan í bland við eik, míneralískt, ögn sprittað í fyrstu, kryddað, þykkt og langt. Kjötvín.
3.399 krónur. Frábær kaup.
-
9