Chateau Musar 2009

img_3401Chateau Musar er eitt helsta „költ“-vín heimsins. Það kemur frá afar ólíklegum stað, Bekaa-dalnum í Líbanon um 30 kílómetra suðaustur af Beirut, og á sér mjög harðsnúinn hóp aðdáenda.

Hochar-fjölskyldan lagði grunninn að Chateau Musar í kringum 1930 og þrátt fyrir borgarastyrjaldir og stríðsátök hefur henni tekist að framleiða vín sín ár eftir ár, með tveimur undantekningum, 1976 og 1984. Það þarf gífurlegan eldmóð til að framleiða heimsklassavín undir þessum kringumstæðum og þegar breska víntímaritið Decanter hóf að útnefna „mann ársins“ árið 1984 var það Serge Hochar frá Musar sem fékk þann heiður í fyrsta skipti.

Musar 2009 er eins og önnur Musar vín mikill karakter. Sæt, sultuð ber í nefi, lakk, maukuð rauð epli og indversk krydd, reykur, mjög mjúk og þægileg tannín, ferskt, þetta er sjö ára vín og það er ljúffeng núna en það má alveg geyma þetta vín þessa vegna í tíu ár án þess að hafa áhyggjur.

90%

4.998 krónur. Frábært og spennandi vín. Flott með villibráð.

  • 9
Deila.