Fetzer Anthony’s Hill Pinot Grigio

Fetzer er vínhús sem stofnað var af Barney Fetser í Kaliforníu fyrir rétt tæpum fjörutíu árum sem hefur lengst af lagt áherslu á lífræna ræktun og sjálfbæra ræktun og er með stærstu framleiðendum á því sviði í Kaliforníu. Anthony Hill er ein af vínlínunum frá Fetzer, með þeim ódýrari og hér er það hvítvín úr þrúgunni Pinot Grigio, sem hefur verið afskaplega vinsæl vestanhafs síðustu árin.

Fölgult, vottur af bleikum tónum. Pinot Grigio er þrúga sem byrjar að skipta um lit þegar hún þroskast og við sjáum það hér. Sýrumikil græn epli í nefi, sítrus, létt með beiskju og töluverðri sýru.

60%

1.699 krónur. Góð kaup.

  • 6
Deila.