Vínhús Benito Santo hefur eitt þeirra vínhúsa sem hefur sett hvað mestan svip á víngerðina í Rias Baixas í norðurhluta Spánar þar sem Albarino-þrúgan gefur af sér einhver bestu hvítvín Spánar. Þetta vín er hins vegar rautt úr þrúgunni Mencia sem er ein af nokkrum virkilega athyglisverðum spænskum þrúgum sem hafa verið að ryðja sér til rúms en hún er aðallega ræktuð í Bierzo. Þrúgurnar í þetta vín eru ræktaðar á svæðinu Monterrei í Galisíu sem er við ána Tamega er myndar á köflum landamæri Spánar og Portúgal á þessu svæði.
Dökkrautt á lit og dökkur berjaávöxtur í nefi, kirsuber, trönuber, krækiber ávöxturinn skarpur og fókuseraður, svolítið harður en engu að síður þægilegur, kryddaður og ferskur, þurr og kröftug tannín. Heillandi vín.
2.499 krónur. Frábær kaup. Með lambi, spænskri skinku eða ostum.
-
9