Apothic Dark 2015

Apothic Dark er systurvín Apothic Red sem að við höfum áður fjallað um og rétt eins og það er þetta eitt af þessum yfirgnæfandi miklu átta sýlindra Kaliforníuvínum þar sem allt er gefið í botn, stíllinn er það sem Bandaríkjamenn lýsa sem „bold“ og víninu er ekki síst ætlað að höfða til millenials-kynslóðarinnar. Apothic Dark er blanda úr þrúgunum Petite Syrah, Cabernet Sauvignon, Petit Verdot, Teraldego, Tannat og Zinfandel.

Þetta er svolítið „ýkt“ vín, svarblátt með sætri og sultaðri berjaangan ásamt kaffi og massavís af apótekaralakkrís, mjúkt og feitt, með sætum ávexti, algjört konfekt. Þetta er ekki vín fyrir alla, en við prufuðum að keyra það í matarboði með vínfólki og niðurstaðan var sú að þriðjungur fílaði það alveg í botn og hinir vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið.

80%

2.299 krónur. Athyglisverð kaup. Með hangikjöti, grillkjöti með BBQ-sósu.

  • 8
Deila.