Rioja-vínhúsið Marques de Riscal var með þeim fyrstu að sýna umheiminum fram á hversu heillandi héraðið Rueda og þrúgan Verdejo gætu verið. Nú eru Verdejo-vínin smám saman að sigra heiminn en þetta er óneitanlega eitt af vínunum sem ruddu brautina alþjóðlega.
Þetta er ferskt og heillandi vín, í nefinu ferskjur, apríkósur, stikilsber og lychée, grösugt með vott af fennel. Mjög ferskt í munni, skarpt örlítið kryddað.
2.199 krónur. Góð kaup.