Eitt það fyrsta sem – að minnsta kosti vínáugamönnum – kemur í hug þegar að Skotland er nefnt á nafn er viský. Það kann hins vegar að koma mörgum á óvart að lengi vel var viskýframleiðsla ólögleg í Skotlandi þó svo að það hafi auðvitað ekki aftrað Skotum frá því að eima sitt viský.
Það var ekki fyrr en með lagasetningu árið 1823 sem að viskýframleiðsla varð loks lögleg og í kjölfarið voru nokkur viskýhús stofnuð sem starfrækt eru enn í dag. Glenlivet á Speyside-svæðinu er eitt þeirra en það er með elstu viskýhúsum Skotlands en það var stofnað í Glenlivet árið 1824 af George Smith, sem áður hafði getið sér mjög gott orð í Skotlandi sem „ólöglegur“ framleiðandi. Það segir sína sögu að þetta er eina húsið sem fær að nota nafn svæðisins og getur því kallað sig „The“ Glenlivet.
Speyside er í hálöndunum (highlands), þetta eru þykk, sæt og mómikil viský en Glenlivet fæst hér 12, 15 og 18 ára. Aldurinn skiptir máli því að það er tunnugeymslan sem að gefur viskýinu bragðið. Þeim mun betri tunnur og aðstæður og þeim mun lengri geymsla, þeim mun betri verður lokaafurðin.