Leitarorð: Heimur vínsins – Spánn

Heimur vínsins - Spánn

Víngerðarkonan Maria Martinez-Sierra hefur fyrir löngu skipað sér í röð þeirra fremstu á Spáni. Það var fyrir um þremur áratugum sem Osborne-fjölskyldan, sem á stærsta vínfyrirtæki Spánar, fól henni að sjá um uppbyggingu á  Montecillo, vínhúsi fjölskyldunnar í Rioja og var hún lengi vel nær eina konan sem hélt utan um víngerðina hjá stóru spænsku vínfyrirtæki.