Nicolas Pollman frá Bodegas Emiliana í Chile var staddur hér á landi á dögunum til að kynna vínhúsið og stjórna smökkun á vínum frá Emiliana og Adobe. Þetta vínhús er í eigu vínrisans Concha y Toro en er engu að síður algjörlega sjálfstæð eining hvað varðar rekstur og markaðssetningu. Fyrirtækið er nú einn stærsti framleiðandi lífrræna vína í heiminum.
Emiliana var stofnað árið 1986 og var áherslan frá upphafi á lífræna ræktun. Fékk Emiliana ISO 14001-vottun árið 2001, fyrst vínhúsa í Chile.
Vínhúsið á í dag 1.171 hektara. Þar af er ræktun 764 hektörum lífrænt vottuð og 407 hektarar í viðbót í vottunarferli. Ekrurnar eru á mörgum af þekktustu svæðum Chile svo sem í Maipo, Casablanca og Bio Bio.
Stefnt er að því að Emiliana verði fullvottað árið 2011 og þá ekki einungis sem lífrænn ræktandi (sem er þriggja ára ferli) heldur lífefldur (biodynamic) ræktandi (sem er fjögurra ára ferli).
Umhverfisstefna er snar þáttur í rekstri fyrirtækisins. Framleiðslan er að nær öllu leyti kolefnisjöfnuð og mikið lagt upp úr þróun umhverfisvænna umbúða.
En allt skipti þetta litlu máli ef víni væru ekki góð. Einföldustu vínin eru seld undir nafninu Emiliana og voru þau ásamt næstu línu fyrir ofan – Adobe – kynnt í smökkun Pollmans í Centrum hótelinu. Þetta eru stílhrein og tæknilega vel gerð vín, rauðu vínin úr Syrah voru sérstaklega áhugaverð.
Að auki framleiðir Emiliana svo toppvín undir nafninu Coyam og Gé.