Vínin smökkuð á Hilton

Fulltrúar fjölmargra erlendra vínfyrirtækja frá öllum heimshornum kynntu vín sín á vínsýningu Haugen Gruppen á Hilton fimmtudaginn 8. september en fyrirtækið hefur verið að stórefla úrval sitt á síðustu misserum.

Það var ánægjulegt að sjá hversu vel franskir framleiðendur mættu. Hvítvín frá Chateau Fuisse í suðurhluta Bourgogne voru meðal þess sem gestir gátu smakkað en þrjú gerólík vín frá sama svæðinu sýndu hvað hugtakið terroir skiptir miklu máli í víngerð en það franska hugtak nær yfir þau séreinkenni vínsins sem ekran sjálf og lega hennar leggja af mörkum. Það sama má segja um Chablis-vínin frá Domaine des Malandes og ekki síður voru hvítvínin frá Loire-framleiðandanum Henri Bourgeois heillandi. Allt frá einföldum og ávaxtaríkum „Petit Bourgeois“ upp í ólíkar útfærslur af Chablis.  Lífræn ræktuð vín frá Laurent Miquel, sem eru að koma inn á markaðinn hér, reyndust afskaplega þétt og sömuleiðis voru þarna rótgrónari vín frá markaðnum sem alltaf standa fyrir sínu s.s. Vidal-Fleury og Willm.

Þarna var líka mættur Matt Thomson yfirvíngeðarmaður Saint Clair í Marlborough á Nýja-Sjálandi. Saint Clair er með virtari vínhúsum landsins og framleiðir mörg spennandi vín en hér á landi hafa til dæmis fengist vín úr Vicars Choice-línunni og hágæðavín úr línunni Pioneer Block. Það er forvitnilegt við vínin hversu mikið þau sveiflast frá því að vera „nýjaheimsleg“ yfir í að vera afskaplega evrópsk í stílnum. Sauvignon Blanc-vínið í Vicars Choice línunni er þannig hreinræktaður Nýsjálendingar, sneisafullur af hitabeltisávexti en Riesling-vínið minnir jafnvel á þýskt Spatlese í stílnum, sýrumikið en með þó nokkurri sætu. Gewurztraminer frá 2007 var hreinasta sælgæti, mitt á milli Alsace og Marlborough. Thomson segir það vera markvissa stefnu að hafa sum vínin evrópskari, með hófstilltari áfengi. Það eigi t.d. við um Pinot Noir-vínin Hann hefur upp á síðkasti verið að þróa fram ný vín og það sem hann er hvað spenntastur fyrir þessa stundina er nýtt vín úr austurrísku hvítvínsþrúgunni Gruner Veltliner.

Á sýningunni voru líka mættir fulltrúar spænskra vínhúsa og vín frá nokkrum til viðbótar til sýnis. Pares Balta-vínin sýndu enn og aftur hvað Pénedes og þrúgur Katalóníu eru spennandi og gaman var að sjá hið nýja Ribera del Duero-vín fyrirtækisins í fyrsta skipti á Íslandi. Þarna var líka mættur Oscar Urrutia frá Cune í Rioja og sýndi m.a. nýtt Viura-hvítvín, eikað og ferskt, sem nýlega kom á markað.

Deila.