Grikkir eiga margar tegundir af kjötbollum. Hér er ein útgáfa af grískum kjötbollum með lambakjöti og myntu.
- 500 g lambahakk
- 2 skalottulaukar, fínsaxaðir
- 2 grænir chilibelgir, fræhreinsaðir og fínsaxaðir
- 3-4 hvítlauksgeirar, fínsaxaðir
- 1 væn lúka mynta, fínsöxuð
- 50 g beikon, skorið mjög smátt
- rifinn börkur af 1 appelsínu
- salt og pipar
Hitið olíu á pönnu og mýkið fínsaxaða skalottulaukinn, hvítlaukinn og chili. Leyfið að kólna.
Blandið saman lambahakkinu, laukblöndunni af pönnunni, appelsínubörk, beikon og myntu. Saltið og piprið.
Mótið litlar kjötbollur á stærð við golfkúlur, Gott er að nota ísskeið.
Steikið kjötbollurnar. Berið fram með steiktum tzatziki jógúrtsósu. Einnig er gott að hafa með steiktar kartöflur með ferskri steinselju og suður-ítalskt tómatasalat.
Með þessu hentar kröftugt suður-evrópskt rauðvín best, t.d. Beso de Vino Seleccion.