Þessi uppskrift er eins konar afbrigði af hinni klassísku Carbonara-uppskrift þar sem steinselja kemur í stað múskatkryddsins. Best er að nota ítalska Pancetta, sem fæst í betri stórmörkuðum, en einnig má nota beikon þess í stað.
- 500 g Penne
- 120 g Pancetta eða beikon, skorið í litla bita
- væn lúka af valhnetum
- 4 eggjarauður
- 2,5 dl matreiðslurjómi eða rjómi
- 150 g rifinn parmesan
- 1 búnt (helst flatlaufa) steinselja, fínsöxuð
- ólívuolía
- salt og pipar
- Sjóðið pasta.
Ristið hneturnar í ofni við 150 gráður í nokkrar mínútur. Saxið
Hitið örlítið af olíu á pönnu. Steikið pancetta/beikon þar til að bitarnir eru orðnir stökki.
Pískið saman eggjarauður, rjóma og rifna parmesanostinn. Bætið steiktu pancettabitunum út í ásamt saxaðri steinseljunni og hnetunun. Saltið og piprið.
Blandið pastanum saman við blönduna í stórri skál. Blandið vel saman og bætið skvettu af góðri ólívuolíu saman við og nýmuldum svörtum pipar.