Matua Valley Sauvignon Blanc 2011

Sauvignon Blanc frá Nýja Sjálandi hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem athyglisverður vínstíll. Þessi franska þrúga tekur á sig nýja mynd á Suðurhvelinu, full af sætum suðrænum ávexti.

Það var á fyrri hluta áttunda áratugar síðustu aldar sem að Sauvignon Blanc-vínviður var fyrst notaður í Nýja Sjálandi og það var lítið vínhús, Matua Valley, sem reið á vaðið. Þetta hvítvín frá Matua Valley er ferskt með þroskuðum greip og ananas í bland við grösugri tóna, jafnvel grænan aspars . Ágætis lengd. Reynið t.d. með silung/bleikju í dill-avgolemono-sósu.

2.399 krónur.

 

Deila.