Japanskt viský sigursælt

Þó flestir tengi vafalaust viský við Skotland þá eru merkilegt nokk framleidd lygilega góð viský í Japan. Þetta er heldur engin bóla, það er komin nokkuð löng hefð fyrir viskýframleiðlu í Japan en hún hófst á nítjándu öld. Á dögunum voru veitt hin árlegu verðlaun á vegum World Whiskey Award og var 17 ára Taketsuru Pure Malt frá Nikka valið besta blandaða maltviskýið. Er þetta fjórða árið sem viský frá Nikka hlýtur þá viðurkenningu.

Taketsuru er blandað úr viskýum frá tveimur eimingarhúsum Nikka, annars vegar Yoichi og hins vegar Miyagikyo.

Deila.