Laurent Miquel L’Artisan Chardonnay 2010

Þetta suður-franska hvítvín frá vínhúsi Laurent Miquel, sem er fjölskyldufyrirtæki í Languedoc, er ferskt og þægilegt. Ljóst á lit, sítrusmikill og ferskur ávöxtur, lime og sítrónubörkur, melónur og perur. Milt og létt með þægilegri sýru í munni. Eikað að hluta en eikin vart greinanlegt, mjög hófstillt. Vel gert og aðgengilegt.

2.299 krónur

Deila.