Mouton Cadet Sauvignon Blanc 2011

Það er þó nokkuð af Sauvignon Blanc í hinum hefðbundna hvíta Mouton Cadet en það var fyrst á síðasta ári sem að Baron Philippe de Rothschild setti á markað nær hreinræktað hvítt Sauvignon Blanc (meira en 85% í blöndunni) frá Bordeaux.

Þetta er eitt af þeim vínum sem kom manni hvað mest á óvart í fyrra – hörkuflottur Sauvignon sem jafnvel nær smá nýjaheimskrafti í blandi við franska fínleikann.

Skarpt og mjög ferskt í nefi, þarna er hinn dæmigerða „katta“-lykt en líka ferskur sítrus, stikilsber og hitabeltisávextir. Mjög ferskt, þægileg sýra í munni og þéttur og góður ávöxtur. Góður fordrykkur eða með t.d. grilluðum fisk eða fiskréttum þar sem sítróna kemur við sögu.

2.199 krónur. Mjög góð kaup, fær fjórðu stjörnuna fyrir hlutfall verðs og gæða.

Deila.